MANNAKORN: MIÐASALA HEFST 1. JÚLÍ
Mannakorn slógu í gegn 15. maí í Háskólabíói og hafa ákveðið að endurtaka leikinn 16. október. Miðasala hefst 1. júlí kl. 10 á Miði.is og öllum sölustöðum Miði.is. Meðlimir á póstlista Bravó geta tryggt sér miða degi áður en sala hefst.
Hin sögufræga hljómsveit Mannakorn hélt ógleymanlega tónleika í Háskólabíói laugardaginn 15. maí síðastliðinn. Uppselt varð á tvenna tónleika á skotstundu og komust miklu færri að en vildu.
"Einstaklega góðir tónleikar."
- Egill Helgason, Eyjan.is
"Tárin láku niður kinnarnar á mér."
- Jóna Á. Gísladóttir, Pressan.is
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn með öðrum glæsilegum ferilstónleikum í Háskólabíói laugardaginn 16. október.
Í aðahlutverki verða að sjálfsögðu þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, sem hafa verið kjölfestan í bandinu frá stofnun þess og þeim til halds og traust er nákvæmlega sami hópur og áður.
Miðasala hefst fimmtudaginn 1. júlí kl. 10 á Miði.is og öllum sölustöðum Miði.is. Að venju fá þeir sem eru skráðir á póstlista Bravó tækifæri til að tryggja sér miða degi áður en almenn sala hefst. Sem fyrr verður eingöngu selt í númerið sæti.
Mannakorn á Tónlist.is
Miðasala á Miði.is
Tónleikarnir á Facebook
Allt um tónleikana
