Fréttir

Eivor poster

MIÐASALA Á EIVÖR HEFST 7. MAÍ

Forsala miða á útgáfutónleika Eivarar í Íslensku óperunni 28. maí hefst föstudaginn 7. maí kl. 10:00 á Miði.is og öllum sölustöðum Miða.is.

Miðaverð er 3.900 kr, eingöngu er selt í númeruð sæti og aðeins 400 miðar eru í boði. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og húsið opnar kl. 21:00.

Þeir sem eru skráðir á Póstlista Bravó munu fá tækifær til að tryggja sér miða fimmtudaginn 6. maí, heilum degi áður en almenn sala hefst.

Hún hélt eftirminnilega tónleika hérlendis í Fríkirkjunni í desember og komust þá færri að en vildu. Eivör var þá eins síns liðs en í Óperunni verður hún með hörku band á bak við sig og hyggst frumflytja lög af nýju plötunni.

Liðsskipan er þannig:
Eivør Pálsdóttir - söngur, gítar, slagverk
Benjamin Petersen - rafgítar
Mikael Blak - rafbassi, kontrabassi
Høgni Lisbert - trommur, slagverk

Nýja breiðskífan, LARVA, er sjöunda hljóðversplatan sem Eivør sendir frá sér og hér sýnir hún á sér nýjar hliðar með því að fjarlægjast "folk" stíl síðustu ára og hella sér í tilraunakenndara og hrárra sánd.



Bookmark and Share
Þetta vefsvæði byggir á Eplica