Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ákveðið hefur verið að halda opnar prufur sunnudaginn 27. júní í Austurbæ frá kl 10 í þrjú burðarhlutverk og ýmis önnur hlutverk. Skráning fer fram á Bylgjan.is til miðnættis á föstudaginn.
Prufað verður í eftirfarandi hlutverk:
1) María Elena
Kærasta Buddy Holly og aðalmótleikkona Ingó. Þegar Buddy verður ástfanginn af henni er hún ung og saklaus starfsmaður hjá hljómplötufyrirtæki. Viðkomandi þarf að geta sungið, leikið og dansað og haft burði til að vera stjarna sýningarinnar ásamt Ingó.
2) Tveir þeldökkir einsöngvarar (karl og kona) á tónleikum í Appollo leikhúsinu
Buddy Holly var meðal þeirra fyrstu hvítu tónlistarmanna sem komu fram í Apollo leikhúsinu, en það er staðsett í hjarta Harlem. Á þeim árum sem söngleikurinn gerist var mikill aðskilnaður þeldökkra og hvítra og baráttan fyrir jafnrétti í hámæli. Í söngleiknum þarf að endurspegla það umhverfi og er leitað sérstaklega að þeldökkum í hlutverk þessara einsöngvara í Apollo leikhúsinu. Þeir sem leika þessi tvö hlutverk taka að auki þátt í öðrum atriðum í sýningunni.
3) Ýmis minni hlutverk / hljóðfæraleikarar
Í sýningunni er mikið um persónur sem eru hljóðfæraleikarar og því leitum við að fólki sem getur spilað á hljóðfæri á atvinnumannastigi auk þess að geta leikið og sungið. Þeir sem telja sig uppfylla þessi skilyrði eru eindregið hvattir til að mæta í skemmtilegar prufur á sunnudaginn og láta ljós sitt skína.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 18 - 29 ára og syngja lag á íslensku að eigin vali án undirleiks auk þess að fara með leikinn texta sem það fær á staðnum. Í dómnefndinni sitja Gunnar Helgason, Jón Ólafsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Allt um Buddy Holly söngleikinn