Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ingó úr Veðurguðunum er Buddy Holly í einum vinsælasta söngleik heims sem frumsýndur verður 7. október í nýuppgerðum og glæsilegum Austurbæ.
Bravó og 3 Sagas frumsýna Buddy Holly söngleikinn 7. október næstkomandi en hér er á ferðinni einn vinsælasti söngleikur allra tíma. Hefur hann gengið sleitulaust fyrir fullu húsi víða um heim frá frumsýningunni í London árið 1991. Um síðustu áramót var heildarfjöldi sýninga um heim allan orðinn rúmlega 20 þúsund og gestirnir rúmlega 21 milljón talsins frá öllum heimshornum.
Nýuppgerður Austurbær hefur ekki litið betur út síðan hann opnaði árið 1947. Þetta sögufræga hús er nú komið í toppstand og verður búið allra fullkomnustu hljóð- og ljósagræjum sem völ er á. Á efri hæð hússins verður opnaður nýr og glæsilegur veitingastaður, þar sem eitt sinn var hinn margrómaði veitingastaður Silfurtunglið. Ætlun nýrra eigenda er að byggja upp skemmtilegt afþreyingar- og menningarhús í miðborg Reykjavíkur og er þessi heimsfrægi gleði- og stuð söngleikur hin fullkomna byrjun.
Listrænir stjórnendur sýningarinnar eru reynsluboltarnir Gunnar Helgason (leikstjóri) og Jón Ólafsson (tónlistarstjóri). Sungið verður á íslensku og þýðing söngtextanna er í höndum Davíðs Þórs Jónssonar. Óhætt er að segja að í raun og veru hafi aldrei neinn annar en Ingó komið til greina í aðalhlutverkið.
Ráðgert er að hefja miðasölu á Buddy Holly söngleikinn í byrjun september og að venju mun meðlimum á póstlista Bravó bjóðast að tryggja sér miða áður en almenn sala hefst. Hljómplata verður gefin út með lögunum úr söngleiknum í haust áður en frumsýnt er.
Opinber síða The Buddy Holly Musical
Ingó og Veðurguðirnir á Tónlist.is
Persónur og leikendur
Ingólfur Þórarinsson Buddy Holly/Gítar
Baldur Ragnarsson Joe/Kontrabassi
Hannes Friðbjarnarson Jerry/Trommur
Ólöf Jara Skagfjörð Maria Elena Santiago
Jóhann G. Jóhannsson Hipockets Duncan
Björgvin Franz Gíslason Norman Petty
Heiða Ólafsdóttir Vicky Petty
Sigurjón Brink Ritchie Valens
Felix Bergsson J. P. Richardson ‘The Big Bopper'
Jónmundur Grétarson Söngvari/Ýmis hlutverk
Tinna Björt Guðjónsdóttir Söngkona/Ýmis hlutverk
Díana Lind Monzon Söngkona/Ýmis hlutverk
Unnur Birna Björnsdóttir Fiðla/Píanó/Ýmis hlutverk
Hildur Jakobína Tryggvadóttir Shirley/Ýmis hlutverk
Guðmundur Stefán Þorvaldsson Gítar/Tommy, fjórði meðlimur the Crickets
Haukur Gröndal Saxófónn/Flauta
Snorri Sigurðarson Trompet
Guðni Finnsson Rafmagnbassi
Listrænir stjórnendur
Leikstjóri Gunnar Helgason
Leikmynd Egill Ingibergsson og Móeiður
Búningar Ellen Loftsdóttir
Lýsing
Tónlistarstjóri Jón Ólafsson
Hreyfingar og dans Birna Björnsdóttir
Handrit Alan Janes og Rob Bettison
Tónlist Charles Hardin Holley (Buddy Holly) o.fl.
Þýðing söngtexta Davíð Þór Jónsson
Þýðing leiktexta Jóhannes Haukur Jóhannesson
Aðstoðarleikstjóri Esther Talía Casey
Hár og förðun Systa Thors